A day in the life of Shirley

Undir regnboganum

Sunday, January 28, 2007

.....HM í handbolta...

Sit ein heima á sunnudegi og horfi á boltann:D Ekki alveg það sem ég er vön að gera en mér hefur alltaf fundist gaman að horfa á landsleiki. Ég hef komið ansi mörgum á óvart með þessari leyndu iðkunn minni:D Íþróttagenið reynist kannski einhverstaðar blunda í mér. Ein spurning...hver er mest sexy í landsliðinu?? Koma svo stelpur....tell me!!:D
Mér fannst alltaf Fúsi....en er samt ekki alveg viss....

En mikið svakalega hafa Þjóðverjarnir vondann smekk fyrir hárgreiðlsum. Allavega í þýska landsliðinu. Þeir eru allir eins og þeir séu nýkomnir af tónleikum með Scooter eða einhverju því mun verra:S

Annars er deffinently vor í loftinu....þó að það sé bara janúar og enginn snjór. Því að bumburnar eru farnar að birtast allstaðar. Þá meina ég óléttubumburnar. Það er eins og þetta sé smitandi ég sver það:D Það eru tvær með mér í skólanum og tvær á skrifstoufnni í skólanum. Ég held meira að segja að það sé ein í viðbót ólétt....ég held að ég þurfi að fara að koma í einangrandi galla í skólann:D

Kelirófann í mér hefur annars gert ansi stóra uppreisn núna um helgina...need someone to pet me;D anyone?

Jæja, ætla að hætta að bulla...miss my kebab!!
Over and out
Glingló the glitterati

Monday, January 08, 2007

....John,I love you...I´m ever so fond of you....

Ég syrgi hér með jólin.....lét til leiðast áðan og tók niður allt jólaskrautið....finnst eins og myrkrið hér í Reykjavík geti alveg eins gleypt mig í heilu lagi núna:S Jólin og áramótin voru ALLT of fljót að líða....vonandi verður janúar eins fljótur að líða...febrúar kannski líka...

Oh,well...skólinn byrjaður aftur. Er rosa ánægð í fatahönnun en er oft að spá hvort að ég ætti kannski frekar að fara meira út í accessorize..eða fylgihluti, kannski skart. Held að það ætti alveg rosalega vel við mig líka. Það er kannski ekkert skrítið að kebabið kallar mig Glingló:D I mean, have you seen my shoes;D Ég laðast að öllu sem glitrar..:P Ein vinkona systir hans pabba var alltaf kölluð Krumma af því að hún er svo glysgjörn....á ágætlega við mig líka;D My brand could be Krumma...ég var nebblega að sjá það í blaðinu um daginn að það er einhver kona búin að stofna barnafataverlsun með sinni eigin vöru sem heitir Gling Gló....er ekki nógu sátt..fannst þetta flottara fyrir mig;D á svo vel við mig;) en oh well, verð bara að finna út úr því!!! Hvað finnst ykkur? Any ideas??

God, how boring am I .......hef ekkert merkilegt að segja!!

Over and out
Glingló the fairy