A day in the life of Shirley

Undir regnboganum

Thursday, March 13, 2008

Vei,vei,vei...árshátíð LHÍ á morgun...jibbí:D Eða allavega í minni deild...come to think of it, þá veit ég ekki hvort það er bara okkar deild eða allur skólinn...hhhmmm!!:S

Við stelpurnar í skólanum héldum "fata-bítti-lána" markað þar sem að við höfum ekki efni á einhverjum dress kaupum fyrir þetta þannig að við settum bara allar fullt af dóti í púkk og fengum síðan lánað hjá hverri annarri:) ég held að engin af okkur fari í sínum eigin fötum:D

Ég er búin að taka laugardaginn frá í þynku þannig að ég verð að vera dugleg að vinna á sunnudaginn:P

Oh, damn,ég var komin með einn í viðbót inn á my sexý voice listann...ahhh,já, runninn sem ég gleymi alltaf....Gavin Rossdale...úr Bush!! Röddin hans færi beint inn á listann sko:)

Anyloowhos...er farin í bælið, þarf að vakna snemma og passa að vera ON time þar sem að ég þarf að sjá um að sækja "fitting" módelið okkar:)

nighters
Blinga

Monday, March 03, 2008

...Rolling with the homies...

Ég gerði reifarakaup um daginn í Elko.....Cluless á DVD á 500 kall...like...a totall classic:D

Cher: No, Hamlet didn´t say that...

Girl: -I think I know Hamlet accurately..

Cher: Well, I remember Mel Gibson accurately and he did NOT say that...

SNILLD:D


Jæja, sníðagerðar geðbilunin er byrjuð. Ég yrði ekkert hissa þótt að allt léreftið á höfuðborgarsvæðinu verði uppselt í Rúmfó fram í apríl:D Gætu alveg eins bara sent það sem þeir fá inn frá lagernum beint niður í Skipholt til okkar. Ég er þegar búinn með einn stranga í aðeins tvö snið og það eru 10 metrar á einum stranga..peewww!!

Kom mér á óvart...er enginn nema ég fan af Daniel Day-Lewis?? Ég bryddaði á þessari umræðu út í London þegar við vorum þar og ég fékk alls ekki góðar undirtektir!! Ég var eiginlega soldið shjocked....ég er hef verið skotin í honum síðan ég var 11 eða 12 þegar ég sá fyrst "In the name of the father"...maðurinn er SNILLINGUR!! And totally hot by the way:P

Anyways, held að ég fari að skríða í bælið...er að reyna að halda svefninum á heilsusamlegum og góðum tíma svo ég vinni betur yfir daginn og nýti tímann betur:)

Hugs
Ladyhawke