A day in the life of Shirley

Undir regnboganum

Tuesday, August 31, 2004

P.s. Ég held að ættingjar Kalla hafi haft samband við hrellingarsamtök kóngulóa á Íslandi eftir að Stella drap Kalla fyrir utan hjá mér úti. Ég hef ALDREI í mínu littla lífi séð jafn ógeðfelda og stóra kónguló eins og stóru Möggu frænku sem er núna búin að búa lengi fyrir utan herbergisgluggann minn.....:S

ÉG VEIT ÉG VEIT...ég er búin að vera ALGER LÚSER í að blogga í sumar.....hef enga afsökun...held samt að þetta sé allt að komast aftur á skrið...vonandi;)

Jæja,hvað hefur svo drifið á daga mína somwhere under ther rainbow....hhhmmm.....alveg bara helling. Nenni nú samt ekki alveg að vera að þylja upp hvert EINASTA atriði. Það sem telst til tíðinda er: Skellti mér til Eyja um Verslunarmannahelgina....Klikkað fjör, ásamt Stellu, Björk og Evu. Erum alveg POTTÞÉTTAR á því að fara aftur á næsta ári...JIBBí:D Jú,svo átti mín náttúrulega afmæli 9.ágúst....gerði nú samt ekkert mikið. Á ennþá eftir að halda fjölskylduboð....:S Annars er maður bara alltaf vinnandi....er að vinna eins og stendur á Landspítalanum þar sem að ég er officially know as the girl with the scarf. Jebbs, a new nickname for Inga.....kemur mér svosum ekki á óvart:D Ég hef líka verið kölluð Pink þar sem að ég og Bryndís erum mjög sammála í því að ljóst hár með bleiku í sé FREKAR TÖFF;) ..minnir mig á það að ég VERÐ að fara að panta tíma í klippingu....ég er eins og ég veit ekki hvað um hausinn....and that is when scarfs come in handy;D

Anyloowho...hvar var ég.....æi,nenni ekki að tala um það sem er löngu liðið......HEY, BIG NEWS...er að fara til LONDON (again, for the 5 time!!) að hitta Ástralska vínkonu mína í fyrsta skipti. Við erum búnar að vera pennavínkonur síðan sumarið fyrir 9.bekk og er þetta í fyrsta skipti sem við fáum tækifæri til að hittast in person.....VÁ,ég er að segja ykkur það...ég er að fríka ÚT af spenningi. Ég ákvað líka að fara því að Stellan og vinkona hennar, Birna, verða úti þarna yfir helgi og ætla ég líka að vera með þeim. Þetta verður GEGGJAÐ:D CAMDEN here I come;) (OH MY GOD, held að það væri EKKI sniðugt ef að ég verð búin að fá námslánið:S)

Ég verð að koma því á framfæri hvað ég skemmti mér vel um helgina, var alveg í DÚNDUR matarboði með Trixie og Vouge og fór svo í innflutningspartý hjá Gregga á Klapparstíg. Gaman að hitta hann þar sem að ég hef ekki séð hann síðan í júní og auðvitað var það fyrsta sem hann skellti á fóninn þegar ég var komin var...."Bömbaðu, bebí, bömbaðu..." SNILLDAR LAG:) Rosalega að gaman að hitta gæludýrið mitt aftur eftir langan tíma...hana Þórkötlu sko...þetta má bara EKKI gerast að við hittumst ekki svona...hhhmmmm!!! Það sem mér þótti líka eiginlega skemmtilegast var að LOKSINS fékk ég að hitta vini hennar Þórkötlu sem hún er búin að vera að tala um í allan vetur. Gott að fá andlit á öll nöfnin. Finnst Villa alger perla:)

Hmmm.....jæja, ætti að fara að reka á eftir múttu...sit sko niðri í FÁ og er að bíða eftir henni. Þarf líka að komast heim úr blautu sokkunum mínum, í sturtu, make a few phonecalls and so on.

Knús
Shirley

p.s. ég skal LOFA að vera meira dugleg að blogga!!
P.s.s. er alveg sammála Stellu.....finnst þetta ekki sniðug þróun í sambandi við blogg....."hvað er að frétta??" Svar"Æi, kíktu bara á bloggið mitt!"....HEEELLLOOO, have people stopped talking!!