A day in the life of Shirley

Undir regnboganum

Monday, April 26, 2004

Oh,who am I kidding.....ég get aldrei munað eftir því að skrifa..:S Er samt að reyna;)He,he,he....can´t blaime a girl for trying!:Þ Annars gengur allt ágætlega þessa dagana....skólinn er að vísu ekkert að skána en það eru bara 2 vikur í dag þangað til Hófí kemur og að heimsækja mig:D JIBBÍ...GET EKKI BEÐIÐ...:D Ætla að biðja hana um að koma kannski með nokkra smáhluti fyrir mig....og kannski grænmetissósu:Þ Gaman að geta sýnt henni svona smá bæinn, hvar ég bý,skólann og svona. Verðum nú líka að fara með hana á krár og skemmtistaði bæjarins, sýna henni Herning by night;) Er annars held ég komin á þá stóru niðurstöðu að koma bara alveg heim í sumar.....Ég veit ekki hvað aðrir segja við því en er mest hrædd um að ég sé að let my mother down. But I have to follow my guts and my heart.....!!
Jæja,nóg um það....tók eftir fyrstu heví,feitu,stóru,svörtu kónguló sumarsins við þakrennuna hjá mér um daginn:S Þvílíkur VIÐBJÓÐUR...úfff....held ég í eina skiptið sem að ég sé glöð að það sé búin að vera rigning í nokkra daga, I hope it drowned:D

Ok,VERÐ að hætta þessu blaðri og koma mér að verki að læra....:S ekki alveg upp to it en Kebabið mitt er búin að koma mér í MIKLU betra skap....hún er æði:)
Love you my sweet kebab!
Knús í ræmur
Shirley

Thursday, April 15, 2004

Hellú...

Jæja,núna er ég komin aftur til Danaveldis, sest við skjáinn og ætla að reyna að vera duglegri að muna eftir að skrifa á bloggið....mér er fyrirgefið, er bara byrjandi;)
Það var alveg SVAKALEGA gott að komast heim. Verð að segja að ég vildi helst ekki fara aftur og að þetta var ALLTOF fljótt að líða:S Skemmti mér alveg konunglega á djamminu....það var meira segja tekin mynd af mér (og Stellu) á Felix, ekkert smá sætar;) Alltaf gaman líka að hitta fjölskylduna, klappa Ronna, og bara vera heima. Er hrædd um að Ísland sé eiginlega bara mitt heimili eins og er.....langar mest bara tilbaka.
En AUÐVITAÐ gekk þessi ferð ekki snuðrulaust fyrir sig. Fluginu út aftur seinkaði sem varð til þess að ég rétt missti (munaði 5 min) af lestinni. Ég þurfti því að bíða í 3 TÍMA á kastrup og var því miður komin út úr fríhöfninni:S til að komast með næstu lest sem færi beint til Herning og var því ekki komin heim til mín fyrr en kl.4:30...úúffff...!!! En þetta jafnasat samt ekkert við heimferðina hérna fyrir jól...:D

Annars var ég að reyna að fara í kókbindindi hérna eftir að ég kom út aftur...but who am I kidding!! Þetta er fíkn.....samt er íslenskt kók alltaf best...ÍSKALT;)

Er að hlusta á Bowie, djöfulsins snillingur:D Skrifaði nokkra snilldrardiska hjá henni Björk um páskana, þar á meðal Best of Bowie, The Clash (hefur alltaf lagnað í hann) og Red Hot Chilli Peppers þar á meðal:) Er allavega að fíla Bowie í ræmur!!

Jæja, ætla að hætta að blaðra.....skrifa fleiri meil, búin að vanrækja það alltof mikið:S

knús
Shirley